
Af hverju sérsmíðuð In-Ear heyrnatól?
Sérsmíðuð in-ear heyrnatól eru framleidd sérstaklega fyrir þig út frá eyrnamótum sem tekin eru af þínum eigin eyrum. Þessi sérsniðna hönnun tryggir fullkomnið mát, meiri þægindi og mun betri hljóðeinangrun en hefðbundin heyrnatól.
Þegar heyrnatólin passa nákvæmlega í eyrað skapast stöðug og áreiðanleg hlustunarupplifun. Þú heyrir hvert smáatriði skýrar, þar sem utanaðkomandi hávaði er einangraður og hljóðið skilar sér beint og nákvæmlega til þín.
Þess vegna treysta tónlistarmenn, hljóðmenn og kröfuharðir hlustendur um allan heim á sérsmíðuð in-ear heyrnatól frá Ultimate Ears – bæði á sviði, í stúdíói og við daglega hlustun.


Af hverju Ultimate Ears?
Með yfir 25 ára reynslu er Ultimate Ears leiðandi í framleiðslu sérsmíðaðra heyrnatóla.
Fullkomið mát!
Sérsmíðað eftir eyrunum þínum fyrir hámarks þægindi.
Hámarks einangrun
-26dB einangrun frá umhverfishljóðum.
Einstök hljóðhönnun
Tækni sem þjónar kröfuhörðustu notendum í öllum aðstæðum.
Þú ræður för
Veldu liti, sendu okkur þitt útlit eða mynstur og veldu réttu týpuna fyrir þig. Sniðið að þínum þörfum frá A-Z.

Fyrir tónlistarmenn, hljóðmenn og tónlistarunnendur
Ultimate Ears heyrnatól eru notuð af heimsþekktum listamönnum á borð við Taylor Swift, Paul McCartney og Keith Urban. Þau eru hönnuð til að veita frábær hljóðgæði, þægindi og áreiðanleika bæði á sviði og í stúdíói.
Kostirnir:
- Skýrt og nákvæmt hljóð á sviði án þess að þurfa mikinn hljóðstyrk
- Betri vernd fyrir heyrnina með minna hávaðaálagi við langa notkun
- Þægilegt og öruggt mát sem hentar vel fyrir langa vinnu eða tónleika
- Hver týpa á sér hlutverk - allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi

Hvernig pöntunarferlið virkar
Einfalt og persónulegt ferli frá fyrirspurn til afhendingar.
Hafðu samband
Sendu okkur fyrirspurn og við svörum öllum spurningum. Þú velur útlit og týpu.
Bóka mótatöku
Við pöntum tíma hjá heyrnarsérfræðingi.
Mótataka
Mót eru tekin af eyrum þínum af fagmanni. Heyrnarmæling gerð í sama tíma.
Framleiðsla
Ultimate Ears framleiðir heyrnatólin í Kaliforníu.
Afhending
Heyrnatólin þín eru tilbúin á 3-6 vikum. Afhendingartími er misjafn eftir álagi hvers tímabils.